FLaytout Menu

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru allar algengar spurningar um Herbalife á einum stað.

Hverjir mega nota vörur frá Herbalife?

Árið 2020 nam dagleg neysla á próteindrykkjum frá Herbalife 5,3 milljónum skammta á heimsvísu. Allar vörur frá Herbalife eru hannaðar til að standast alþjóðalög, ásamt löggjöf í ESB og í einstökum löndum, til að tryggja að þær séu öruggar til neyslu fyrir heilbrigt, fullorðið fólk. Nota ber vörur frá Herbalife samkvæmt fyrirmælum í áletrunum. Mikilvægt er að athuga að sumar vörur okkar hafa að geyma innihaldsefni á borð við soja, hafra, mjólkurafurðir, koffín og önnur efni sem vera kann að henti ekki tilteknum einstaklingum, svo sem þunguðum konum og mæðrum með barn á brjósti. Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi vörur frá Herbalife eða tiltekin innihaldsefni getur þú haft beint samband við alþjóðlegt neytendaöryggisteymi okkar. Herbalife mælir einnig með að leita ráða hjá heilsugæslunni áður en ráðist er í breytingar á mataræði.