Yfirlit
Þessi fjölhæfa próteinblanda er þróuð til að styðja við daglega næringu og mæta daglegri próteinþörf.
Formula 3 próteinduft er unnið úr blöndu af mysupróteini og hágæða sojapróteini, sem stuðlar að viðhaldi og vexti vöðvamassa.
Formula 3 próteinduftið aðstoðar þig við að stýra daglegri próteininntöku. Duftið er með hlutlausu bragði og blandast því auðveldlega í drykki og máltíðir, þegar þú vilt bæta við próteini. Bættu því einfaldlega við næringardrykka, súpur og sósur og auktu próteininntöku þína á einfaldan hátt.
Eiginleikar
Formula 3 próteinduft:
- Veitir 5 g af hágæða soja– og mysupróteinblöndu í hverjum skammti
- 23 hitaeiningar í hverjum skammti
- Fjölhæft í notkun vegna hlutlauss bragðs
- Próteinuppbót sem auðvelt er að blanda saman við aðrar vörur eða máltíðir
- Inniheldur 40 skammta
Hvað er í því
Til að fá upplýsingar um ofnæmisvalda sjá feitletruð innihaldsefni.
Hvernig á að nota
Ein slétt matskeið af dufti (6 g) gefur 5 g af próteini. Fáðu þér einn til fjóra skammta á dag. Hristu dúnkinn vandlega fyrir hverja notkun. Hægt er að bæta þessu bragðlausa dufti út í u.þ.b. 150 ml af vökva eða fæðu, þar á meðal sósum, súpum og sósugrunnum.
Notaðu vöruna sem hluta af vel samsettu, fjölbreyttu mataræði og samhliða heilnæmum og virkum lífsstíl.
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum og þurrum stað.
Vörunúmer 0242
Vísindalega studdar næringarvörur okkar eru eingöngu fáanlegar í gegnum sjálfstæða meðlimi Herbalife. Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja sjúkdóma.