Yfirlit
Fylltu á tankinn eftir líkamsþjálfun* með Rebuild Strength.
Rebuild Strength er kolvetna-próteinbata* drykkur, sérstaklega þróaður fyrir þrekíþróttamenn. Þessi einstaki íþróttadrykkur er samsettur með viðbættu L-glútamíni og L-karnitíni og inniheldur einnig sérstaklega valin kolvetni til að hjálpa þér að jafna þig* eftir þrekæfingar.
Rebuild Endurance er samsett úr hágæða mysupróteini með 25 grömm af próteini í hverjum skammti, sem stuðlar að vexti og viðhaldi vöðvamassa. Rebuild Strength er einnig samsett með blöndu af lykil snefilefnum, þar á meðal C-vítamíni og járni. Járn stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum, eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og eðlilegum flutningi súrefnis um líkamann.
Nýttu þér þína stund eftir æfingu með Rebuild Strength.
*Kolvetni stuðla að því að vöðvar endurheimti eðlilega starfshæfni sína eftir afar erfiðar og langvarandi líkamsæfingar sem leiða til vöðvaþreytu og skerðingar glýkógenforða í beinagrindarvöðvum. Heillavænleg áhrif fást af því að neyta alls kyns kolvetna og miða skal við að heildarneyslan sé 4 g á hvert kíló líkamsþyngdar. Neyta skal þessa skammts innan fjögurra klukkustunda og eigi síðar en sex klukkustundum eftir afar erfiðar og/eða langvarandi líkamsæfingar sem leiða til vöðvaþreytu og skerðingar glýkógenforða í beinagrindarvöðvum.
Eiginleikar
Herbalife24 Rebuild Strength:
- Veitir 25 g af próteini í hverjum skammti
- Samsett úr hágæða mysupróteini
- Veitir 6,3 mg af járni í hverjum skammti
- Ríkt af C-vítamíni
- Samsett með L-glútamíni og greinóttum amínósýrum (BCAA)
- Vottað* af Informed Sport*
- Inniheldur 20 skammta
*Bönnuð efni prófuð. Informed-Sport gæðatryggingakerfið vottar að sýnishorn úr lotunni sem þessi vara var framleidd í hafi verið prófað af íþróttalyfjarannsóknarstofu LGC á og það reyndist ekki innihalda bönnuð efni í lyfjaeftirlitsskimun.
Hvað er í því
Til að fá upplýsingar um ofnæmisvalda sjá feitletruð innihaldsefni.
Hvernig á að nota
Hristu dósina létt fyrir hverja notkun þar til duftið sest. Bættu 5 sléttum skeiðum (50 g) út í 250 ml af vatni og hristu kröftuglega. Neyttu innan 30 mínútna eftir þrekæfingar.
Njóttu vörunnar sem hluta af vel samsettu og fjölbreyttu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl.
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum, þurrum stað.
Vörunúmer 1437
Vísindalega studdar næringarvörur okkar eru eingöngu fáanlegar í gegnum sjálfstæða meðlimi Herbalife. Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja sjúkdóma.