Yfirlit
Hvort sem þú vilt ná stjórn á þyngdinni eða eiga hentugan valkost fyrir vel samsetta næringu, þá veitir Formula 1 næringardrykkurinn líkamanum næringu á einfaldan og bragðgóðan hátt án þess að fórna bragði eða þægindum.*
Formula 1 næringardrykkurinn er búinn til úr 100% vegan–innihaldsefnum og inniheldur blöndu af lykilnæringarefnum, þar á meðal plöntupróteini, kolvetnum, trefjum, vítamínum og steinefnum. Stuðlaðu að árangursríkri þyngdarstjórnun og vellíðan með næringardrykk sem inniheldur hágæða næringu.
Þessi næringardrykkur er tilvalinn sem næringarríkur valkostur í morgunmat, hádegismat eða kvöldmat. Formula 1 er þróaður til að veita vel samsetta næringu á meðan þú heldur utan um hitaeiningarnar.*
Formula 1 næringardrykkurinn passar vel inn í lífsstílinn þinn, sama hvernig dagurinn þróast. Fæst í ýmsum bragðtegundum. Formula 1 er góður valkostur ef þú vilt ljúffengan og handhægan næringardrykk sem auðvelt er að taka með sér, hvort sem markmiðið er þyngdarstjórnun eða almenn vellíðan. Formula 1 næringardrykkinn má nota á marga mismunandi vegu. Þú getur sérsniðið næringardrykkinn þinn með viðbótarpróteini eins og Drykkjarpróteini eða Formula 3 próteindufti, eða bætt við þínum uppáhalds ávöxtum og grænmeti til að gera næringuna fjölbreyttari.**
*Formula 1 Vel samsettur næringardrykkur er máltíðaruppbót í formi næringardrykkjar sem hentar hitaeiningastýrðu mataræði. Veitir nauðsynlegt magn af vítamínum og steinefnum, próteini og trefjum.
**Næringargildi gildir aðeins ef varan er útbúin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Eiginleikar
Formula 1 Vel samsettur næringardrykkur:
- Veitir 18 g af hágæða próteini í hverjum skammti
- Inniheldur 25 lykilvítamín og steinefni
- Inniheldur vegan–innihaldsefni
- Án glútens
- Án gervilitarefna og gervibragðefna
- Inniheldur náttúruleg sætuefni
- Kemur í pakka með 7 skammtapokum
*Þegar duftinu er blandað saman við 250 ml af léttmjólk (1,5% fita).
Hvað er í því
Til að fá upplýsingar um ofnæmisvalda sjá feitletruð innihaldsefni.
Hvernig á að nota
Njóttu Formula 1 Vel samsetta næringardrykksins daglega sem nærandi máltíð. Til að útbúa ljúffengan máltíðardrykk skal blanda tveimur skeiðum af dufti (26 g) við 250 ml af kaldri léttmjólk (1,5% fita). Ef þú vilt útbúa plöntumiðaðan og náttúrulega laktósafrían máltíðardrykk skaltu blanda duftinu saman við 250 ml af kalk– og vítamínbættum sojadrykk. Ertu að leita að hollri máltíð án mjólkur eða sojadrykkjar? Prófaðu Formula 1 með Vegan Drykkjarpróteini og vatni. Formula 1 Vel samsetti næringardrykkurinn er bestur þegar hann er útbúinn með ísmolum. Bættu 250 ml af mjólk að eigin vali í blandara, bættu við 3 – 4 ísmolum, tveimur skeiðum af Formula 1 Vel samsetta næringardrykknum og blandaðu þar til blandan er kekkjalaus. Notaðu þessa vöru sem hluta af vel samsettu, fjölbreyttu mataræði og samhliða heilnæmum og virkum lífsstíl.
Geymist á köldum og þurrum stað.
Fyrir þyngdarstjórnun: Máltíðardrykkir eða stangir í stað tveggja meginmáltíða á dag, sem hluti af hitaeiningaskertu fæði, stuðla að þyngdartapi. Skiptu út tveimur máltíðum á dag fyrir dýrindis Formula 1 drykk og borðaðu vel samsetta máltíð.
Til að viðhalda jafnvægi í næringu og líkamsþyngd: Í hitaeiningaskertu mataræði getur máltíðardrykkur eða stöng, í stað einnar meginmáltíðar á dag, stuðlað að því að halda þyngd í jafnvægi eftir þyngdartap. Skiptu út einni máltíð á dag fyrir dýrindis Formula 1 næringardrykk og borðaðu tvær vel samsettar máltíðir.
Þessi vara er ætluð til notkunar sem hluti af hitaeiningaskertu mataræði og með öðrum matvælum samhliða reglulegri hreyfingu. Mikilvægt er að drekka nægilegan vökva. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum eins og tilgreint er á umbúðum vörunnar.
Vörunúmer 053K
Vísindalega studdar næringarvörur okkar eru eingöngu fáanlegar í gegnum sjálfstæða meðlimi Herbalife. Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja sjúkdóma.