Yfirlit
Annríki dagsins á ekki að koma niður á næringunni þinni. Formula 1 Express máltíðarstöng er ljúffeng leið til að njóta hollrar og næringarríkrar máltíðar hvar og hvenær sem er.*
Þessi ljúffenga stöng er uppfull af hágæða próteini og lykilvítamínum og steinefnum og auðveldar þér að ná þínum næringarmarkmiðum.
Aldrei missa úr máltíð aftur. Hvort sem þú ert í ræktinni, í vinnunni eða að stunda útiveru þá er heilnæm Formula 1 Express máltíðarstöng hinn fullkomni ferðafélagi. Njóttu næringarríkrar og hollrar máltíðar sama hvert dagurinn leiðir þig.*
*Heilnæm Formula 1 Express máltíðarstöng er staðgöngumáltíð með takmörkuðum hitaeiningafjölda. Veitir nauðsynlegt magn af vítamínum og steinefnum, próteini og trefjum.
Eiginleikar
Hver heilnæm Formula 1 Express máltíðarstöng:
- Veitir 13 g af próteini
- Samsett úr 25 lykilvítamínum og steinefnum
- Veitir 7 g af trefjum
- Hentar grænmetisætum
- Án gervilitarefna
- 7 stangir í öskju
Hvað er í því
Til að fá upplýsingar um ofnæmisvalda sjá feitletruð innihaldsefni.
Hvernig á að nota
Notaðu heilnæma Formula 1 Express máltíðarstöng daglega sem nærandi máltíð. Notaðu þessa vöru sem hluta af vel samsettu, fjölbreyttu mataræði og samhliða heilnæmum og virkum lífsstíl.
Geymist á köldum og þurrum stað.
Fyrir þyngdarstjórnun: Máltíðardrykkir eða stangir í stað tveggja meginmáltíða á dag, sem hluti af hitaeiningaskertu fæði, stuðla að þyngdartapi. Skiptu út tveimur máltíðum á dag fyrir ljúffenga Formula 1 Express máltíðarstöng og borðaðu eina vel samsetta máltíð.
Til að viðhalda jafnvægi í næringu og líkamsþyngd: Í hitaeiningaskertu mataræði getur máltíðardrykkur eða stöng, í stað einnar meginmáltíðar á dag, stuðlað að því að halda þyngd í jafnvægi eftir þyngdartap. Skiptu út einni máltíð á dag fyrir ljúffenga Formula 1 Express máltíðarstöng og borðaðu tvær vel samsettar máltíðir.
Þessi vara er ætluð til notkunar sem hluti af hitaeiningaskertu mataræði og með öðrum matvælum samhliða reglulegri hreyfingu. Mikilvægt er að drekka nægilegan vökva. Mikilvægt er að fylgja þessum leiðbeiningum eins og tilgreint er.
Vörunúmer 4472
Vísindalega studdar næringarvörur okkar eru eingöngu fáanlegar í gegnum sjálfstæða meðlimi Herbalife. Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja sjúkdóma.