Yfirlit
Fylltu á tankinn eftir líkamsþjálfun* með Rebuild Strength.
Rebuild Strength er kolvetna– og próteindrykkur*, sérstaklega þróaður fyrir þrekíþróttamenn. Þessi einstaki íþróttadrykkur inniheldur viðbætt L–glútamín og greinóttar amínósýrur (BCAA) ásamt handvöldum kolvetnum sem styðja við endurheimt* eftir þrekæfingar.
Rebuild Strength inniheldur hágæða mysuprótein með 25 g af próteini í hverjum skammti sem stuðlar að vexti og viðhaldi vöðvamassa. Rebuild Strength inniheldur einnig blöndu af lykilsnefilefnum, þar á meðal C–vítamíni og járni. Járn stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum, eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og eðlilegum flutningi súrefnis um líkamann.
Stuðlaðu að góðri endurheimt eftir æfingu með Rebuild Strength.
*Kolvetni stuðla að því að vöðvar endurheimti eðlilega starfsemi eftir erfiðar og langvarandi æfingar sem leiða til vöðvaþreytu og skerðingar glýkógenforða í beinagrindarvöðvum. Hagstæð áhrif nást með neyslu kolvetna, úr öllum uppsprettum, sem nemur samtals 4 g á hvert kg líkamsþyngdar. Neyta skal þessa skammts innan fjögurra klukkustunda og eigi síðar en sex klukkustundum eftir afar erfiðar og/eða langvarandi æfingar sem leiða til vöðvaþreytu og skerðingar glýkógenforða í beinagrindarvöðvum.
Eiginleikar
Herbalife24 Rebuild Strength:
- Veitir 25 g af próteini í hverjum skammti
- Inniheldur hágæða mysuprótein
- Veitir 6,3 mg af járni í hverjum skammti
- Ríkt af C–vítamíni
- Inniheldur L–glútamín og greinóttar amínósýrur (BCAA)
- Vottað af Informed Sports*
- Inniheldur 20 skammta
*Prófað gegn bannefnum. Informed–Sport gæðatryggingakerfið vottar að sýnishorn úr lotunni sem þessi vara var framleidd í hafi verið prófað af íþróttalyfjarannsóknarstofu LGC og hún reyndist ekki innihalda bönnuð efni í lyfjaeftirlitsskimun.
Hvað er í því
Til að fá upplýsingar um ofnæmisvalda sjá feitletruð innihaldsefni.
Hvernig á að nota
Hristu dúnkinn vandlega fyrir notkun þar sem innihaldið getur safnast fyrir neðst. Bættu 5 sléttum skeiðum (50 g) út í 250 ml af vatni og hristu kröftuglega. Neyttu innan 30 mínútna eftir þrekæfingar.
Notaðu vöruna sem hluta af vel samsettu, fjölbreyttu mataræði og samhliða heilnæmum og virkum lífsstíl.
Geymist í lokuðum umbúðum á köldum og þurrum stað.
Vörunúmer 403K
Vísindalega studdar næringarvörur okkar eru eingöngu fáanlegar í gegnum sjálfstæða meðlimi Herbalife. Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja sjúkdóma.