Yfirlit
Nýttu Rebuild Strength til að knýja endurheimt* líkamans eftir æfingar.
Rebuild Strength er kolvetna- og próteindrykkur sem styður endurheimt* eftir æfingar og er sérstaklega þróaður fyrir þrekíþróttafólk. Drykkurinn inniheldur L-glútamín og BCAA amínósýrur, auk vandlega valinna kolvetna sem hjálpa líkamanum að jafna sig* eftir þrekæfingar.
Rebuild Strength er unninn úr hágæða mysupróteini og veitir 25 grömm af próteini í hverjum skammti sem stuðlar að vexti og viðhaldi vöðvamassa. Hann inniheldur einnig blöndu af mikilvægum snefilefnum (micronutrients), þar á meðal C-vítamíni og járni. Járn stuðlar að eðlilegum orkugefandi efnaskiptum, myndun rauðra blóðkorna og flutningi súrefnis um líkamann.
Hámarkaðu endurheimtina fljótlega eftir æfingu með Rebuild Strength.
*Kolvetni stuðla að endurheimt eðlilegrar vöðvastarfsemi eftir mjög krefjandi og langvarandi líkamsæfingar sem valda vöðvaþreytu og minnkun glýkógenforða í beinagrindarvöðvum. Áhrifin nást með neyslu alls kyns kolvetna, að lágmarki 4 g á hvert kíló líkamsþyngdar, innan fjögurra klukkustunda og eigi síðar en sex klukkustundum eftir slíkar æfingar.
Eiginleikar
Herbalife24 Rebuild Strength:
- Veitir 25 g af próteini í hverjum skammti
- Samsett úr hágæða mysupróteini
- Veitir 6,3 mg af járni í hverjum skammti
- Ríkt af C-vítamíni
- Samsett með L-glútamíni og greinóttum amínósýrum (BCAA)
- Vottað* af Informed Sport*
- Inniheldur 7 skammta
*Bönnuð efni prófuð. Informed-Sport gæðatryggingakerfið vottar að sýnishorn úr lotunni sem þessi vara var framleidd í hafi verið prófað af íþróttalyfjarannsóknarstofu LGC á og það reyndist ekki innihalda bönnuð efni í lyfjaeftirlitsskimun.
Hvað er í því
Sjá feitletruð innihaldsefni til að fá upplýsingar um ofnæmisvalda sjá.
Hvernig á að nota
Blandaðu innihaldi eins skammtapoka (50 g) við 250 ml af vatni og hristu kröftuglega. Drekktu innan 30 mínútna eftir þrekæfingu. Varan er ætluð sem hluti af fjölbreyttu mataræði og heilbrigðum, virkum lífsstíl.
Geymið á köldum og þurrum stað.
Vörunúmer 486K
Vísindalega studdar næringarvörur okkar eru eingöngu fáanlegar í gegnum sjálfstæða meðlimi Herbalife. Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja sjúkdóma.