Hversu ríka áherslu leggur Herbalife á gæði?
Innihaldsefni sem Herbalife notar eru fengin frá bændum sem kappkosta að uppfylla metnaðarfulla staðla fyrirtækisins um ræktun og náttúruvernd. Herbalife prófar innihaldsefni á rannsóknarstofum sem eru á heimsmælikvarða áður en þau eru tekin inn í framleiðsluna. Þannig er tryggt að þau uppfylli ekki aðeins óhagganlega alheimsstaðla fyrirtækisins sjálfs, heldur einnig allar kröfur yfirvalda. Rannsóknarstofur Herbalife hafa hlotið hæsta stig af vottun (ISO 17025) sem endurspeglar að fyrirtækið hlítir í einu og öllu kröfuhörðustu stöðlum í næringariðnaðinum. Hið víðtæka gæðaferli sem haft er í heiðri hjá Herbalife tryggir að sérhver vara inniheldur einmitt þau innihaldsefni sem eru nefnd í áletrunum á umbúðum. Allt frá ræktun á innihaldsefnum þar til framleiddar hafa verið fullbúnar vörur, sem hjálpa viðskiptavinum að lifa heilnæmara lífi, er rík áhersla á gæði þungamiðjan í öllu sem Herbalife gerir.